Bröns panna með pylsum og bökuðum baunum



⌑ Samstarf ⌑
bröns hugmyndir

Við fjölskyldan elskum bakaðar baunir! Þessi tilraun var því einstaklega vinsæl á þessu heimili og heppnaðist afar vel. Virkilega skemmtileg tilbreyting fyrir brönsinn og ég mæli með að þið prófið um helgina!

Namm!

brunch ideas

Bröns panna með pylsum og bökuðum baunum

Fyrir 3-4 manns

  • ½ laukur
  • 4 x pylsur
  • 1 x Heinz bakaðar baunir (415 g)
  • 3 egg
  • Rifinn ostur
  • Ristað brauð
  • Salt + pipar
  • Smjör til steikingar
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið laukinn í strimla og steikið upp úr smjöri ásamt niðurskornum pylsunum, saltið og piprið.
  3. Hellið baunadósinni saman við og blandið saman.
  4. Ef þið eruð með ofnhelda pönnu megið þið gera 3 x holu í baunablönduna og brjóta eitt egg í hverja holu. Ef pannan má ekki fara í ofninn hellið þið baunablöndunni í eldfast mót og brjótið eggin í holur þar.
  5. Stráið rifnum osti yfir allt saman.
  6. Bakið í ofninum í um 10 mínútur, berið síðan fram með ristuðu brauði.
hugmyndir fyrir morgunverðinn

Þessar klassísku eru alltaf bestar!

morgunverður bröns

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun