Hér kemur ein fyrir hindberja- og lakkrís unnendur!
Namm!

Brownie ostakaka í glasi
Uppskrift fyrir um 6 glös/skálar
Brownie botn
- 150 g smjör við stofuhita
- 180 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 200 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
- 80 g hveiti
- 1 msk. bökunarkakó
- ½ tsk. salt
- 2 msk. heitt vatn
- Hitið ofninn í 175°C.
- Klippið bökunarpappír í botninn á um 25 x 35 cm skúffukökuform (svo hægt sé að toga kökuna upp á endunum) og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
- Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
- Bætið eggjunum saman við ásamt vanilludropum og skafið niður á milli þess sem þið þeytið vel.
- Næst fer brætt suðusúkkulaði saman við og að lokum öll þurrefni og heitt vatn.
- Hellið í formið, sléttið úr og bakið í um 25 mínútur.
- Kælið alveg og lyftið kökunni síðan uppúr forminu og stingið út hringi með þeim glösum/skálum sem þið notið. Einnig hægt að nýta afganginn til að brjóta niður í botninn á fleiri glösum/skálum.
Ostakökufylling
- 400 g rjómaostur við stofuhita
- 100 g sykur
- 50 g flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 100 g hvítt súkkulaði (brætt)
- 300 ml þeyttur rjómi
- 125 g hindber (stöppuð)
- 100 g Eitt sett kurl
- Þeytið saman rjómaost, sykur, flórsykur og vanillusykur.
- Bætið næst bræddu hvítu súkkulaði saman við.
- Vefjið nú þeytta rjómanum varlega saman við og bætið hindberjum og Eitt sett kurli saman við og blandið létt.
- Skiptið niður í glös/skálar yfir brownie-botninn og útbúið næst lakkrís-karamelluna.
Toppur og skraut
- 1 poki Töggur með hindberja- og lakkrísbragði
- 50 ml rjómi
- Fersk hindber
- Eitt sett kurl
- Bræðið saman Töggur og rjóma þar til slétt lakkríssósa hefur myndast, kælið stutta stund og hrærið reglulega í á meðan þar til sósan þykknar örlítið og mesti hitinn er farinn úr henni.
- Setjið sósu yfir ostakökufyllinguna eftir smekk og toppið með ferskum hindberjum og Eitt sett kurli.

Ef þið hafið ekki smakkað þessar þá eruð þið að missa af!



































