Kóreskur kjúklingaréttur



⌑ Samstarf ⌑
kóreskur kjúklingaréttur

Við fjölskyldan elskum mat með asísku yfirbragði. Hér er á ferðinni kóreskur kjúklingur í hollari kantinum þar sem hann er ekki í hveitihjúp né djúpsteiktur. Svo góður að hann kláraðist upp til agna!

Fljótlegur og góður réttur!

kjúklingur og hrísgrjón

Kóreskur kjúklingaréttur

Fyrir 4-5 manns

  • 2 x poki af Rose Poultry kjúklingalundum (2 x 700 g)
  • 10 msk. soyasósa
  • 7 msk. hunang
  • 6 msk. hrísgrjónaedik
  • 6 msk. púðursykur
  • 3 msk. sesamolía
  • 2 msk. Sriracha sósa
  • 2 msk. rifið engifer
  • 1 msk. rifinn hvítlaukur
  • Vorlaukur
  • Sesamfræ
  • 5 pokar Tilda Boil in bag Basmati hrísgrjón
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  1. Byrjið á að skera kjúklinginn í litla bita og steikja upp úr ólífuolíu, salti, pipar og hvítlauksdufti, leggið til hliðar.
  2. Sjóðið nú hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka og útbúið sósuna fyrir kjúklinginn á meðan.
  3. Setjið soyasósu, hunang, hrísgrjónaedik, púðursykur, sesamolíu, Sriracha sósu, engifer og hvítlauk í pott.
  4. Náið upp suðunni, lækkið þá hitann og leyfið að malla í 5-10 mínútur áður en þið hellið yfir kjúklinginn.
  5. Berið kjúklinginn fram með hrísgrjónum, vorlauk og sesamfræjum.
hversdagsmatur

Ég nota alltaf grjónin í pokunum frá Tilda nema þegar ég geri grjónagraut! Svo svakalega þægilegt að miða magnið við einn poka á mann, stilla á 12 mínútur og allt klárt, ekkert vesen!

kjúklingaréttur

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun