Ef ykkur langar í súper einfaldan um leið og súper góðan kvöldverð þá verðið þið að prófa þennan rétt!
Namm!

Kjúklingaleggir í undursamlegri sósu
Fyrir um 4 manns
Kjúklingaleggir í ofni
- 2 pakkar kjúklingaleggir (um 12 stykki)
- Kjúklingakrydd
- Garlic Rosemary Citrus Sauce frá Stonewall Kitchen
- Hitið ofninn í 200°C.
- Setjið kjúklingaleggina í eldfast mót/ofnskúffu.
- Kryddið þá með kjúklingakryddi og hellið svo allri sósuflöskunni yfir leggina.
- Bakið í 40-45 mínútur eða þar til leggirnir eru steiktir í gegn. Gott að skera í stærsta bitann til að sjá hvort hann sé tilbúinn.
Bakaðar sætar kartöflur
- Um 1 kg sætar kartöflur
- Ólífuolía
- 1 krukka fetaostur
- 2 lúkur ristaðar furuhnetur
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Flysjið kartöflurnar og skerið í munnstóra bita.
- Setjið í ofnskúffu og drisslið vel af matarolíu yfir þær.
- Kryddið eftir smekk og blandið vel saman.
- Bakið í um 35 mínútur, takið út og dreifið úr fetaostinum yfir allt (ekki nota alla olíuna samt, bara það litla sem kemur með skeiðinni).
- Bakið aftur í um 15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
- Stráið furuhnetum yfir í lokin og berið fram með kjúklingaleggjunum og góðu brauði.

Eins og allt frá Stonewall Kitchen þá er þessi sósa ferðalag fyrir bragðlaukana og tekur hversdagslega kjúklingaleggi á æðra plan!

Að blanda fetaosti og furuhnetum saman við bakaðar sætar kartöflur er síðan svoooo gott!


































