Sumarið er á næsta leyti og þetta salat er æðislega ferskt og gott! Einnig er góð tilbreyting að grilla fisk, rækjur, humar og annað slíkt í bland við kjötið á næstunni.
Namm!

Sumarsalat með grilluðum humri
Fyrir um 4 manns
- 800 g skelflettur humar
- ½ flaska Caj P grillolía með hvítlauk
- Romaine salat
- 2 x avókadó
- 500 g jarðarber
- Blaðlaukur
- Ristaðar furuhnetur
- Heinz Ceasar dressing
- Hvítlauksbrauð
- Byrjið á því að skola, hreinsa og þerra humarinn, setjið í skál.
- Hellið Caj P grillolíunni yfir og blandið vel saman við með sleikju, leyfið að marinerast á meðan annað er undirbúið (lengur líka í lagi).
- Skerið niður grænmeti ásamt jarðarberjum og skiptið niður í 4 skálar, toppið með humri, dressingu og furuhnetum og berið fram með hvítlauksbrauði.

Það er einföld lausn að setja Caj P grillolíu á grillmatinn til að gefa honum gott bragð! Það má í raun nota þessa olíu á allt sem hugurinn girnist, hvort sem það er kjöt, fiskur eða grænmeti, það verður allt betra með Caj P.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































