Tómatsúpa og grillað ostabrauð



⌑ Samstarf ⌑
tomato soup and grilled cheese

Ég hef lengi ætlað að prófa útfærslu af „Tomato Soup & Grilled Cheese“ eins og Bandamenn myndu kalla þetta. Dóttir vinkonu minnar var síðan að gera svona um helgina og ég fékk senda mynd og gat ekki hætt að hugsa um þetta svo loksins lét ég verða af því að koma þessu hingað inn fyrir ykkur! Súpan er stútfull af góðri næringu og þetta ostabrauð er eitthvað annað gott!

Þið verðið að prófa!

grilled cheese

Tómatsúpa og grillað ostabrauð

Fyrir 4-5 manns

Tómatsúpa uppskrift

  • 1 kg Buff-tómatar
  • 2 x rauðlaukur
  • 2 litlir heilir hvítlaukar (eða 8 rif)
  • 1 rauð paprika
  • 250 ml rjómi
  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • 1 l grænmetissoð
  • Ólífuolía
  • 2 tsk. oregano
  • 2 msk. basilika fersk
  • Salt og pipar
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið tómatana niður í minni bita ásamt lauk, hvítlauk og papriku.
  3. Setjið í eldfast mót/pott, setjið nokkrar matskeiðar af ólífuolíu yfir allt ásamt vel af salti og pipar. Blandið saman og bakið í ofninum í 40 mínútur.
  4. Færið pottinn (eða hellið bakaða grænmetinu í pott) yfir á helluna og setjið restina af hráefnunum saman við (rjóma, rjómaost, grænmetissoð, oregano og basiliku).
  5. Náið suðunni upp og hrærið vel saman, lækkið hitann, setjið lokið á pottinn og leyfið þessu að malla í um 15 mínútur, undirbúið ostasamlokurnar á meðan.
  6. Nú má nota töfrasprota og mauka allt saman og leyfa súpunni svo að malla við vægan hita áfram, smakkið og bætið við kryddi eftir smekk.

Grillað ostabrauð

  • 8-10 sneiðar af hvítu súrdegisbrauði
  • Mozzarella ostur rifinn
  • Cheddar ostur rifinn
  • Smjör
  1. Blandið ostunum saman og setjið vel af osti á milli tveggja brauðsneiða.
  2. Smyrjið aðra hliðina með vel af smjöri og leggið smjörhliðina niður á meðalheita pönnu.
  3. Smyrjið þá hina hliðina sem snýr upp einnig með vel af smjöri og snúið þegar brauðið byrjar að dökkna og verður stökkt.
  4. Endurtakið og skerið samlokuna síðan í tvennt og njótið með súpunni.
tómatsúpa og grillað ostabrauð

Sumarlegt og kalt hvítvín passar vel með þessari súpu!

tómatsúpa

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun