Dumplings núðlusúpa



dumpling noodle soup

Ég hef lengi ætlað að prófa útfærslu af svona súpu þar sem við bæði elskum dumplings og núðlur! Loksins lét ég verða af því og almáttugur þetta var svo gott!

Einfalt og ótrúlega gott!

dumpling noodle soup

Dumplings núðlusúpa með kókos-karrý

Fyrir 4-6 manns

  • 110 g rautt karrý paste
  • 6 msk. hnetusmjör
  • 5 hvítlauksgeirar
  • 6 cm engifer (ferskt)
  • 800 ml kókosmjólk
  • 1 l kjúklingasoð
  • 3 lúkur Pak Choi salat
  • 1 lime (safinn)
  • 20 dumplings að eigin vali
  • 300 g udon núðlur
  • Harðsoðin egg
  • Kóríander
  • Chilli olía
  1. Setjið karrý paste, hnetusmjör, kókosmjólk og kjúklingasoð í pott. Rífið engifer og hvítlauk saman við.
  2. Náið upp suðunni bætið lime safa og niðurskornu Pak Choi salati í pottinn. Lækkið svo hitann og leyfið að malla í um 15 mínútur eða lengur.
  3. Sjóðið á meðan núðlur og egg og leggið til hliðar.
  4. Næst má ná aftur upp suðunni, setja dumplings saman við og leyfa þeim að sjóða með súpunni í um 6 mínútur.
  5. Þá má setja núðlurnar saman við og blanda öllu saman og skipta í skálar.
  6. Toppið hverja skál síðan með harðsoðnu eggi, kóríander og chilli olíu.
dumpling noodle soup

John Gregory Smith er einn af mínum uppáhalds og þessa hugmynd fékk ég hjá honum

dumpling noodle soup

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun