Hér kemur undursamleg, lúxus eplabaka sem allir munu elska!
Namm!

Eplabaka með karamellusúkkulaði og marsípani
- 130 g sykur
- 130 g hveiti
- 150 g smjör við stofuhita
- 60 g haframjöl
- 3 græn epli
- 100 g Pipp með saltkaramellufyllingu
- 100 g marsipan
- 50 g Síríus suðusúkkulaði
- Kanilsykur (50 g sykur + 1 tsk. kanill)
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eldfast mót að innan með smjöri.
- Blandið saman sykri, hveiti, smjöri og haframjöli með K-inu í hrærivélinni, ekki blanda of lengi, betra að hafa þetta lausara í sér til að klípa niður í formið.
- Flysjið eplin og skerið í þunnar skífur.
- Skerið gróft niður Pipp og suðusúkkulaði.
- Raðið í formið: ½ af deiginu í botninn, eplin yfir, kanilsykur, Pipp súkkulaði, restin af deiginu, marsípan (litlar klípur) og loks suðusúkkulaði.
- Setjið álpappír laust yfir og bakið í 25 mínútur þannig, takið álpappírinn síðan af og bakið í 15 mínútur til viðbótar.
- Njótið með ís eða þeyttum rjóma.

Súkkulaði gerir eplabökur extra næs og ég notaði bæði karamellu Pipp og suðusúkkulaði þetta skiptið.



































