Morgunverðar-croissant með jalapeño rjómaosti



⌑ Samstarf ⌑
bröns hugmyndir

Regína vinkona mín sagði mér fyrir löngu að hún elskaði Croissant á Te&Kaffi með jalapeño rjómaosti og avókadó. Ég setti þessa hugmynd eðlilega á listann minn. Síðan koma alltaf nýjar hugmyndir upp og ég gleymi listanum góða þar til annað slagið líkt og nú. Hér hafið þið því þessa nema ég breytti henni í extra lúxus croissant sem var undursamlegt!

Verðið að prófa!

bröns hugmyndir

Morgunverðar-croissant með jalapeño rjómaosti

Uppskrift fyrir 2 stk

  • 2 x smjördeigs croissant
  • 100 g Philadelphia rjómaostur original
  • 1 msk. saxað jalapeño úr krukku
  • 4 stökkar beikonsneiðar
  • 3 egg
  • 1 x avókadó
  • Klettasalat
  1. Blandið rjómaosti og jalapeño saman og leggið til hliðar.
  2. Hitið beikonið í ofni þar til það er stökkt og setjið croissant stykkin inn í ofn í um 2 mínútur í lokin.
  3. Pískið eggin saman og steikið á meðan á lítilli pönnu á báðum hliðum, skerið eggjakökuna í tvennt áður en þið setjið hana á brauðið.
  4. Smyrjið á efri og neðri hluta á croissant stykkjunum með rjómaostinum.
  5. Setjið klettasalat á botninn, næst eggjakökuna, niðurskorið avókadó, beikon og lokið ofan á.
brunch ideas

Namm, þetta er nokkrum númerum of gott!

croissant með jalapeno rjómaosti

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun