Ég hafði ekki enn hoppað á „crispy rice salad“ vagninn svo það var kominn tími til að prófa! Þetta var heldur betur gott og hollt og verður klárlega útbúið aftur fljótlega!
Namm!

Kjúklingasalat með stökkum hrísgrjónum
Fyrir um 4 manns
Stökk hrísgrjón
- 1 pk Tilda Boil in bag basmati hrísgrjón (4 x 62,5 g)
- 2 msk. sesamolía
- 3 msk. soyasósa
- 1 tsk. chilliolía
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Dreifið úr þeim á ofnskúffu og kælið alveg.
- Hitið ofninn í 200°C.
- Hellið sesamolíu, soyasósu og chilliolíu yfir grjónin og blandið vel saman þar til þau eru öll þakin sósu.
- Bakið í ofninum í 25-30 mínútur eða þar til þau fara að gyllast, snúið á 10 mín fresti.
- Takið úr ofninum og leyfið að kólna á meðan þið undirbúið annað.
Tahini-soya dressing
- 4 msk. soyasósa
- 3 msk. hunang
- 2 msk. Tahini
- 2 msk. sesamolía
- ½ lime safinn
- 4 hvítlauksgeirar (rifnir)
- 3 cm engifer (rifið)
- Hrærið öllu saman í skál og geymið þar til í lokin og hellið yfir salatið.
Önnur hráefni og samsetning
- 4 x grilluð kjúklingabringa
- 300 g edamame baunir
- 2/3 agúrka
- 5 vorlaukar
- 100 g kasjúhnetur (ristaðar)
- Affrystið edamame baunirnar (eða sjóðið þær í 2 mínútur ef þær eru frosnar), leggið til hliðar.
- Skerið grilluðu kjúklingabringurnar niður í bita.
- Skerið agúrku, vorlauk og kasjúhnetur niður.
- Setjið öll þessi hráefni + hrísgrjón og tahini-soya dressingu saman í stóra skál.
- Blandið vel saman og njótið.

Stökk hrísgrjón í salat eru klárlega þess virði að prófa!

Svo gott!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































