Ég kalla hrískökur úr bræddum sykurpúðum alltaf amerískar Rice Krispies kökur. Þegar við bjuggum í Bandaríkjunum kom ég eitt sinn með þessar klassísku íslensku með suðusúkkulaði á leikskólann og kennararnir voru alveg að missa sig yfir þeim. Ég útbjó því uppskrift af þeim á ensku fyrir þær sem ég skírði „Rice Krispies Treats from Elín Heiða“ og sendi þær í Whole Foods til að kaupa Síríus suðusúkkulaði frá Nóa Síríus því ég sagði það væri lykilhráefni, hahaha! Ég verð að segja að bæði sé einfaldlega betra og gaman að skiptast á og hafa fjölbreytni í þessu.
Mmmm!

Sykurpúða hrískökur með Bíókroppi
16 stykki
- 60 g smjör
- 260 g mini sykurpúðar
- 140 g Rice Krispies
- ½ poki Bíókropp frá Nóa Síríus + meira til skrauts
- 50 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
- Matarolíusprey
- Klæðið um 25 x 25 cm kökuform að innan með bökunarpappír og spreyjið næst með smá matarolíuspreyji svo auðveldara verði að ná kökunni úr til að skera hana í bita.
- Bræðið smjör í potti við vægan hita og blandið sykurpúðunum saman við. Hrærið þar til þeir hafa bráðnað saman við smjörið og loftkennd blanda myndast.
- Takið af hellunni og hrærið Rice Krispies og Bíókroppi saman við.
- Setjið nú blönduna yfir í kökuformið og þjappið niður með glasi/öðru með flötum botni, gott er að setja smá matarolíusprey á botninn svo hann klístrist síður við.
- Þjappið niður eins og þið getið og sléttið úr toppnum, kælið síðan í um 30 mínútur áður en þið skerið í bita.
- Bræðið suðusúkkulaðið og drisslið yfir eitt hornið og stingið einu Bíókroppi í miðjuna á því, látið storkna áður en þið njótið.

Bíókroppið kemur með smá súkkulaðifíling í kökurnar og þetta var ótrúlega góð blanda!



































