Bakaðir ostar eru eitt það allra besta! Hér kemur ein ný hugmynd fyrir ykkur sem mun sannarlega ekki valda vonbrigðum!
Fljótlegt og ó svo gott!

Bakaður brie ostur með hráskinku
- 1 x brie ostur að eigin vali
- 3 hráskinkusneiðar
- 3 tsk. chilli hunang
- 1 lúka pekanhnetur (saxaðar)
- 1 tsk. timian (saxað)
- ½ baguette brauð
- Ólífuolía og salt
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skerið brie ostinn í teninga og raðið í eldfast mót.
- Rífið hráskinkuna niður og stingið á milli ostabitanna.
- Dreifið hunangi, pekanhnetum og timiani yfir og bakið í 10 mínútur.
- Skerið á meðan baguette brauðið í sneiðar, penslið smá ólífuolíu yfir sneiðarnar og stráðið ögn af salti yfir. Bakið með ostinum síðustu 3 mínúturnar.
- Njótið með kældu Willm hvítvíni!

Fullkominn helgar forréttur!

Myndi segja að einn svona ostur sé fyrir tvo sem forréttur/síðdegissnarl svo ef þið eruð fleiri mætti gera stærri uppskrift.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































