Tiramisu með sítrónukexi



⌑ Samstarf ⌑
Tiramisu

Sumarlegur og fullkominn eftirréttur sem kitlar bragðlaukana!

Namm!

Tiramisu uppskrift

Tiramisu með sítrónukexi

  • 2 pk. Frón kremkex með sítrónukremi
  • 4 eggjarauður
  • 140 g flórsykur
  • 500 g mascarpone ostur við stofuhita
  • 1 x vanillustöng (fræin)
  • 500 ml þeyttur rjómi (skipt í 150 og 350)
  • Sítrónusýróp (sjá uppskrift að neðan)
  • 2 msk. lemon curd
  • Blóm til skreytingar
  1. Byrjið á því að útbúa sítrónusýrópið og leyfið því að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
  2. Takið til ferkantað form (um 25 x 25).
  3. Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til blandan verður létt og ljós.
  4. Bætið þá mascarpone osti + vanillustöng saman við og þeytið aðeins áfram.
  5. Vefjið um 150 ml af rjómanum saman við blönduna.
  6. Dýfið kexinu í sýrópið og raðið í botninn á forminu (brjótið til eftir stærð formsins).
  7. Setjið ½ af mascarpone blöndunni yfir kexið og sléttið úr, endurtakið svo úr verði tvö eins lög.
  8. Smyrjið um 2 msk. af lemon curd yfir miðjuna á toppnum (skiljið 2-3 cm eftir í köntunum) en einnig má setja lemon curd yfir hana alla ef þið viljið.
  9. Setjið restina af þeytta rjómanum í sprautupoka með fíngerðum, stórum stjörnustút og sprautið toppa allan hringinn með kantinum og fyllið inn í hornin, skreytið með blómum.
  10. Kælið í að minnsta kosti 4 klst. eða yfir nótt í ísskáp.

Sítrónusýróp uppskrift

  • 200 ml vatn
  • 200 g sykur
  • 2 sítrónur (safinn og smá börkur)
  1. Setjið allt í pott, hitið að suðu og lækkið síðan hitann.
  2. Hrærið vel í þar til sykurinn er bráðinn, hellið yfir í grunna skál og leyfið að ná stofuhita áður en þið dýfið kexunum í.
Tiramisu með sítrónukexi

Það er svo gaman að prófa eitthvað nýtt þegar það kemur nýtt kex á markaðinn!

Tiramisu
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun