Kjúklinga BLT vefjur



⌑ Samstarf ⌑
blt wrap

Salat vefjur hafa verið ansi vinsælar undanfarið og ég varð auðvitað að hoppa á vagninn og prófa útfærslu af slíkum! Útkoman var stórgóð og allir á heimilinu ansi sáttir með þetta uppskrift svo hér kemur hún fyrir ykkur að njóta.

Namm!

kjúklingavefja

Kjúklinga BLT vefjur

Uppskrift gerir 6 vefjur (fyrir um 4 manns)

  • 6 stórar vefjur
  • 700 g Rose Poultry kjúklingalundir (1 poki)
  • ½ flaska Caj P hvítlauks grillolía
  • 8 beikonsneiðar
  • ½ salathaus (romaine eða iceberg)
  • 1 x avókadó
  • ½ rauðlaukur
  • 150 g piccolo tómatar
  • 2/3 box Philadelphia rjómaostur
  • Jógúrtsósa (sjá uppskrift hér að neðan)
  • Kjúklingakrydd, hvítlauksduft, salt og pipar

  1. Setjið kjúklingalundirnar í grillolíuna og veltið vel uppúr henni, kryddið einnig eftir smekk og grillið síðan á meðalheitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Leyfið kjúklingnum að hvíla á meðan annað er undirbúið.
  2. Eldið beikon í ofni/grilli þar til stökkt og saxið síðan gróft niður.
  3. Skerið salat, avókadó, tómata og kjúkling niður í litla bita, saxið rauðlaukinn.
  4. Hellið öllu í skál ásamt beikoninu og setjið um ½ af jógúrtsósunni yfir og blandið vel.
  5. Smyrjið hverja vefju að innan með um 1 msk af rjómaosti og skiptið salatblöndunni síðan á milli vefjanna.
  6. Rúllið upp, skerið í tvennt og njótið.

Jógúrtsósa uppskrift

  • 3 msk. grísk jógúrt
  • 3 msk. Heinz majónes
  • ½ sítróna (safinn)
  • 2 msk. jómfrúarolía
  • Hvítlauksduft, salt og pipar
  1. Pískið allt saman og setjið um helminginn yfir salatið áður en það fer í vefjurnar og berið afganginn fram með fyrir þá sem vilja meira.
salatvefja

Það gerir vefjuna extra djúsí og góða að smyrja hana að innan með rjómaosti áður en salatið fer í hana.

hollur kvöldmatur

Það er svo þægilegt að grilla kjúklingalundir því þær eru bara nokkrar mínútur á grillinu!

salatvefjur

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun