Það er sannarlega hægt að færa pylsupartý upp á næsta „level“ með góðu meðlæti!
Þetta þarf ekki að vera flókið til að vera gott!

Pylsuveisla með kartöflusalati
Kartöflusalat uppskrift
- 1 kg soðnar kartöflur (rauðar)
- 4 x harðsoðin egg (skorin í bita)
- ½ rauðlaukur (saxaður)
- 160 g majónes
- 2 tsk. Stonewall Kitchen Sweet Honey Mustard
- 1 msk. sítrónusafi
- Paprikuduft, hvítlauksduft, salt og pipar
- Blandið öllu varlega saman í skál og kryddið eftir smekk.
- Geymið í kæli fram að notkun.
Pylsur og annað meðlæti
- Alls kyns mismunandi pylsur
- Stonewall Kitchen Sweet Honey Mustard
- Stonewall Kitchen Country Ketchup
- Steiktur laukur
- Grillið pylsurnar og berið fram með kartöflusalati, sinnepi, tómatsósu og steiktum lauk.

Þessi tómatsósa er ekki beint eins og nein önnur tómastsósa, heldur bara dásamlegt meðlæti með ýmsum mat.

Pylsur með tómat + sinnep verða smá meiri lúxuspylsur með þessu!



































