Hér koma einfaldir og krönsí súkkulaðimolar með karamellufylltum sykurpúðum! Fullkomnir til að grípa með í útileguna eða til að njóta heima á næstunni!
Jömmí!

„Rocky Road“ súkkulaðimolar
- 1 poki Nóa Bíókropp
- 1 poki Nóa súkkulaðikringlur
- 1 poki Smash súkkulaðisnakk
- 1 poki Nóa Koddar
- 200 g Síríus mjólkursúkkulaði
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 100 g Síríus súkkulaðiperlur
- Bræðið mjólkursúkkulaði + suðusúkkulaði og setjið allt nema súkkulaðiperlur saman í skál og blandið saman.
- Klæðið um 25×25 cm bökunarmót að innan með bökunarpappír, hellið blöndunni ofan í, þjappið niður og sléttið úr eins og hægt er.
- Stráið súkkulaðiperlum yfir allt og setjið í kæli í að minnsta kosti klukkustund.
- Skerið síðan niður í bita og njótið!

Ef þið hafið ekki smakkað þessa þá mæli ég með að þið drífið ykkur út í búð! Síðustu pokarnir eru nefnilega komnir í verslanir!



































