Grillaðir þorskhnakkar í Teriyaki sósu



⌑ Samstarf ⌑
grillaður þorskur

Mánudagsfiskurinn tekinn á æðra plan á samt svo ótrúlega einfaldan máta!

Þið verðið að prófa þessa uppskrift!

kvöldmatur hugmyndir

Grillaðir þorskhnakkar í Teriyaki sósu

Fyrir um 4 manns

  • 1 kg þorskhnakkar
  • 1 stk. kúrbítur
  • Vorlaukur
  • 1 flaska Sesame ginger Teriyaki Sauce frá Stonewall Kitchen
  • Salt + pipar
  • Meðlæti: Núðlur eða hrísgrjón (eða bæði) og naan brauð.

  1. Hitið grillið.
  2. Skolið og þerrið þorskhnakkana og skerið síðan hvert flak í um þrjá hluta.
  3. Leggið bitana á pönnu/álbakka með botni eða annað ílát sem má fara á grillið.
  4. Skerið kúrbítinn niður og dreifið yfir pönnuna.
  5. Saltið, piprið og hellið Teriyaki sósunni yfir allt.
  6. Leggið álpappír lauslega yfir og eldið á heitu grilli í 13-15 mínútur eða þar til fiskurinn er tilbúinn.
  7. Þegar fiskurinn kemur af grillinu má strá niðurskornum vorlauk yfir allt saman.
  8. Gott er að bera fiskinn fram með soðnum hrísgrjónum og/eða núðlum og setja vel af sósunni úr pönnunni yfir allt saman. Einnig er gott að grilla naan brauð síðustu mínúturnar með fiskinum.
góður fiskur uppskrift

Elska, elska, elska þessa Teriyaki sósu!

fiskur á grillið

Namm!

hvað á að vera í matinn
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun