Pavlovur með lakkríssósu og hindberjum



⌑ Samstarf ⌑
marengskökur

Marengs er eitthvað sem ég fæ ekki nóg af og get endalaust útbúið nýjar útfærslur af slíku ljúfmeti!

Namm!

lakkríssósa uppskrift

Pavlovur með lakkríssósu og hindberjum

Um 15 stykki

Pavlovur uppskrift

  • 4 eggjahvítur
  • 240 g púðursykur

  1. Hitið ofninn í 110°C.
  2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær fara aðeins að freyða.
  3. Bætið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum og þeytið þar til topparnir halda sér og þið sjáið nánast engar sykuragnir lengur.
  4. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og sprautið litlar skálar með stórum stjörnustút. Gott er að gera botn fyrst og svo eins og tvo hringi yst á botninum svo úr verði nokkurs konar skál/hreiður til að hægt sé að setja rjómann ofan í.
  5. Bakið í 80 mínútur, slökkvið þá á ofninum og leyfið pavlovunum að kólna niður með honum.
  6. Hægt er að gera pavlovur með nokkurra daga fyrirvara og geyma í plasti. Síðan bara fylla með nokkurra klukkustunda fyrirvara eða kvöldinu fyrir notkun.

Lakkríssósa uppskrift

  • 1 poki Eitt Sett kúlur frá Nóa Síríus (150 g)
  • 70 ml rjómi

  1. Brætt saman í potti við meðalháan hita þar til kúlurnar hafa bráðnað.
  2. Leyfið hitanum síðan að rjúka vel úr og sósunni að ná stofuhita áður en þið hellið henni yfir rjómann.

Rjómafylling og samsetning

  • 500 ml rjómi
  • 2 tsk. vanillusykur
  • Fersk hindber (um 250 g)
  • Eitt Sett kurl frá Nóa Síríus (um 100 g)

  1. Þeytið saman rjóma og vanillusykur, setjið í sprautupoka og fyllið pavlovurnar vel, ofan í holuna og aðeins upp á kantana.
  2. Setjið væna matskeið af sósu yfir rjómann á hverri köku, smá Eitt Sett kurl og 1-3 hindber.
  3. Geymið í kæli í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
litlar marengskökur

Það er svo einfalt að útbúa lakkríssósu með Eitt sett kúlum + rjóma og hana má líka nota út á ís eða annað góðgæti.

pavlova
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun