Ef ykkur langar í sumarlega og ljúffenga köku mæli ég með að þið prófið þessa hér!
Namm!

Bláberja og sítrónu „blondie“
Kaka uppskrift
- 150 g hveiti
- 100 g sykur
- ½ tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
- 1 sítróna (börkur + safi)
- 3 egg
- 100 g smjör (brætt)
- 1 tsk. vanilludropar
- 150 g Driscolls bláber
- Hitið ofninn í 175°C og klæðið 25+25 cm ferkantað bökunarform að innan með bökunarpappír.
- Byrjið á því að bræða smjörið og leggið það til hliðar og leyfið því að kólna á meðan annað er undirbúið.
- Setjið öll þurrefnin í hrærivélarskálina og rífið börkinn af sítrónunni saman við.
- Blandið öllu saman og bætið næst eggjum, smjöri, safa úr 1 sítrónu og vanilludropum saman við, skafið niður á milli.
- Að lokum má vefja bláberjunum saman við, hella í bökunarformið og baka í um 25 mínútur eða þar til kantarnir fara aðeins að gyllast.
- Kælið kökuna alveg áður en þið setjið glassúrinn á.
Glassúr uppskrift
- 100 g flórsykur
- 2-3 msk. sítrónusafi
- Pískið saman og smyrjið yfir kökuna.
- Einnig er fallegt að rífa smá sítrónubörk yfir en ekki nausynlegt.
- Leyfið kökunni að fara í kæli í um 15 mínútur áður en þið skerið hana í bita.

Bláberin frá Driscolls eru stór og ljúffeng um þessar mundir!

Ég sá þessa hugmynd á Instagram um daginn og gat ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég væri búin að prófa eitthvað svipað og sé aldeilis ekki eftir því.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































