Sumar nammi- og ávaxtabakki



⌑ Samstarf ⌑
ávaxtabakki með nammi

Þegar tíminn er naumur má sannarlega slá um sig með því að bjóða upp á einfaldan nammi- og ávaxtabakka þar sem allir munu finna eitthvað við sitt hæfi! Ég gerði þennan bakka á dögunum og var hann ekki lengi að hverfa!

Einfalt og gott!

fljótlegt partýsnarl

Sumar nammi- og ávaxtabakki

  • ½ vatnsmelóna
  • 1 appelsína
  • 1 askja jarðarber
  • 2 lúkur bláber
  • 3 lúkur kirsuber
  • Vínberjaklasi
  • ½ kassi Tom&Jerry kex
  • ½ kassi Brago bókstafakex
  • 1 poki Opal hlauphringir (ávaxtabragð)
  • 1 poki Opal hlauphringir (berjabragð)
  • 1 poki Nóa Bíókropp
  • 1 poki Smash súkkulaðisnakk
  • ½ poki Nóa hjúplakkrís
  1. Skerið niður melónu, appelsínu og skolið aðra ávexti og þerrið.
  2. Raðið síðan ávöxtum, kexi og sælgæti fallega saman á bakka.
  3. Gott er að hafa í huga að raða ekki rökum ávöxtum upp við kexið, betra að það liggi upp við súkkulaði og/eða hlaup.
hlauphringir

Ég elska þessa hlauphringi!

ávextir og nammi

Gott jafnvægi, hahaha!

nammi og ávaxtabakki

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun