Vatnsmelónukaka með berjum



⌑ Samstarf ⌑
watermelon cake

Ég hef lengi ætlað að prófa að útbúa svona ávaxtaköku og loksins lét ég verða af því! Þetta var svo gaman og einfalt og verður án efa útbúið aftur á þessu heimili fljótlega!

Hollt, gott og fallegt!

vatnsmelónukaka

Vatnsmelónukaka með berjum

  • 2 x vatnsmelóna
  • Driscolls hindber
  • Driscolls brómber
  • Driscolls jarðarber
  • Driscolls bláber
  • Fersk blóm að eigin vali
  1. Byrjið á að skera báða endana af melónunum og leggja þær á bretti.
  2. Snyrtið eina í einu, skerið börkinn af og mótið „kökubotna“, það þarf að taka lúmskt mikið ofan og neðan af þeim til að ná sléttum hliðum.
  3. Mótið neðri melónuna stærri en þá efri og stingið síðan 3 grillspjótum ofan í neðri melónu-kökubotninn áður en þið leggið þann minni ofan á svo hún renni ekki af þegar þið farið að skreyta.
  4. Notið tannstöngla til að festa berin á, mér fannst gott að taka tannstöngul í tvennt fyrir öll ber nema notaði heila fyrir jarðarberin.
  5. Geymið í kæli fram að notkun en best er að njóta ávaxtakökunnar sem fyrst.
watermelon cake with berries

Driscolls berin mín bestu setja punktinn yfir I-ið á þessari skemmtilegu köku.

melónukaka

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun