„Shake Shack“ hamborgari + sjeik



⌑ Samstarf ⌑
jarðarberjasjeik og hamborgari

Almáttugur þetta er svooooo gott! Ég hef prófað ýmislegt „copy cat“ en þetta er eitt af því besta og ALLIR sem elska Shake Shack verða að prófa!

Slurp!

shake shack hamborgari

„Shake Shack“ hamborgari + sjeik

Fyrir 4 manns

„Shake Shack“ hamborgari uppskrift

  • 4 x 140 g hamborgarabuff (eða þjappað nautahakk)
  • 4 x kartöflu-hamborgarabrauð
  • 8 sneiðar „American Cheese“
  • Buff tómatur
  • Grænt blaðsalat
  • Salt og pipar
  • Smjör til steikingar
  • „Shake Shack“ hamborgarasósa (sjá uppskrift að neðan)
  1. Byrjið á því að útbúa hamborgarasósuna og geymið í kæli á meðan þið steikið hamborgarana.
  2. Smjörsteikið brauðin og skerið niður grænmeti.
  3. Steikið kjötið á meðalheitri pönnu, setjið bökunarpappír ofan á og „smassið“ niður með spaða eða öðru til að fletja kjötið vel út.
  4. Steikið þar til kjötið fer aðeins að dökkna í köntunum, saltið og piprið og snúið við.
  5. Saltið og piprið á hinni hliðinni og setjið ostinn ofan á og leyfið honum að bráðna.
  6. Setjið hamborgarann saman: Brauð, sósa, buff, kál, tómatur og brauð með sósu.
  7. Gott er að bera borgarann fram með frönskum en munið að setja þær í ofninn áður en þið byrjið á að undirbúa hamborgarana.

„Shake Shack“ hamborgarasósa uppskrift

  • 200 g Heinz majónes
  • 2 msk. Heinz tómatsósa
  • 1 msk. Heinz sinnep
  • 2 msk. safi frá súrum gúrkum
  • ¼ tsk. cheyenne pipar
  • ½ tsk. salt
  1. Pískið saman og geymið í kæli fram að notkun.

„Shake Shack“ jarðarberjasjeik uppskrift

  • 1 líter vanilluís
  • 300 ml nýmjólk
  • 250 g Driscolls jarðarber
  • 4 msk. jarðarberja íssósa
  1. Setjið jarðarberin í blandarann og maukið vel.
  2. Bætið næst restinni af hráefnunum saman við og blandið þar til fallegur ljósbleikur sjeik hefur myndast.
  3. Skiptið niður í 4 glös.
hamborgari og sjeik

Ekki skemmir síðan fyrir að hafa auka sósu, sinnep og tómatsósu á kantinum fyrir franskarnar!

shake shack copycat

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun