Ég var aldrei búin að prófa pastaæðið með ostakubbinum svo ég mátti til með að spreyta mig á þessu. Þetta er ótrúlega einfalt og virkilega skemmtileg tilbreyting frá öðrum pastaréttum og verður klárlega útbúið aftur á okkar heimili.

Linguini í ostasósu
Fyrir um 4 manns
- 500 g linguini
- 100 g ferskt spínat
- 400 g kirsuberjatómatar
- 1 x Ostakubbur frá Gott í matinn (250 g)
- 4 hvítlauksgeirar
- 100 ml pastavatn
- 6 msk. ólífuolía
- Ristaðar furuhnetur
- Salt, pipar, hvítlauksduft
- Hitið ofninn í 200°C.
- Setjið spínat og tómata í eldfast mót og rífið hvítlaukinn yfir.
- Setjið næst ólífuolíuna yfir allt, kryddið vel og blandið saman.
- Leggið ostinn í fatið og bakið í 25 mínútur í ofninum.
- Sjóðið linguini þegar um 10 mínútur eru eftir af eldunartímanum í ofninum.
- Stappið ost, tómata og spínat saman, hellið pastavatninu saman við og blandið öllu vel.
- Næst fer soðið linguini saman við og blandið öllu vel saman.
- Toppið með ristuðum furuhnetum og njótið!

Svo gott!



































