Pinsa með lauksultu og brie osti



⌑ Samstarf ⌑
pizza með lauksultu

Það er svo geggjað þegar eitthvað ofureinfalt og fljótlegt slær svona í gegn! Hér hafið þið klárlega „föstudagspizzu“ eins og hún gerist best í lúxusútgáfu!

Namm!

pinsa með lauksultu

Pinsa með lauksultu og brie osti

Fyrir tvo

  • 2 x pinsabrauð
  • 1 krukka „Roasted Garlic Onion Jam“ frá Stonewall Kitchen
  • 2 x brie ostur að eigin vali
  • 8 sneiðar hráskinka
  • 2 x lúka klettasalat
  • Furuhnetur
  • Hot Honey
  1. Hitið ofninn í 250°C.
  2. Skerið brie ostinn í bita og rífið hráskinkuna aðeins niður.
  3. Smyrjið lauksultunni yfir botnana og dreifið næst úr brie osti og hráskinku.
  4. Bakið í ofninum í 5 mínútur og toppið síðan með klettasalati, hot honey og furuhnetum.
fljótleg pizza

Þessi lauksulta, almáttugur maður minn!

pizza með hráskinku
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun