Mig hefur lengi langað til að prófa að gera súkkulaði kanilsnúða og vá hvað þetta kom vel út! Þetta er eins mikið súkkulaði og hægt er, súkkulaðideig, súkkulaðifylling og súkkulaðikrem…..og kremið er eitthvað annað gott!
Slef!

Súkkulaði „cinnabons“ með súkkulaði og kaffi rjómaostakremi
Snúðadeig uppskrift
- 100 ml vatn + 1 msk. sykur
- 1 pk þurrger (um 12g)
- 150 ml mjólk
- 90 g brætt smjör
- 1 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 420 g hveiti
- 30 g bökunarkakó
- ½ tsk. salt
- ½ tsk. kanill
- PAM matarolíusprey
- Velgið vatnið með sykrinum og setjið þurrgerið saman við, leyfið að standa í nokkrar mínútur þar til gerið fer að freyða.
- Blandið gerblöndunni, mjólk, bræddu smjöri, eggi og vanilludropum saman í hrærivélarskálinni með króknum.
- Blandið þurrefnunum saman við og hnoðið vel saman.
- Spreyið skál að innan með PAM, veltið deigkúlunni uppúr olíunni, plastið skálina og leyfið að hefast í 1 klukkustund.
- Fletjið deigið út á hveitistráðu borði þar til það myndar um 40×50 cm ferhyrning og setjið fyllinguna yfir.
Fylling
- 100 g púðursykur
- 2 msk. kanill
- 80 g brætt smjör
- 100 g suðusúkkulaði (saxað)
- Penslið bræddu smjöri jafnt yfir deigið.
- Blandið saman sykri og kanil og dreifið jafnt yfir deigið.
- Stráið að lokum saxaða súkkulaðinu jafnt yfir allt og rúllið þétt upp.
- Skiptið niður í 12 einingar og raðið í vel smurt form.
- Plastið að nýju og leyfið að hefast í 30-60 mínútur að nýju.
- Hitið ofninn í 180°C og bakið í um 20 mínútur.
- Takið úr ofninum og leyfið mesta hitanum að rjúka úr. Útbúið rjómaostakremið á meðan og smyrjið því síðan yfir volga snúðana og njótið.
Súkkulaði og kaffi rjómaostakrem uppskrift
- 150 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
- 50 g smjör við stofuhita
- 280 g flórsykur
- 20 g bökunarkakó
- 2 msk. uppáhellt kaffi
- 1 tsk. vanilludropar
- ¼ tsk. salt
- Þeytið allt saman og smyrjið yfir volga snúðana.
- Toppið með smá söxuðu dökku súkkulaði (má samt sleppa).

Rjómaostakremið gæti ég borðað eitt og sér það var svo guðdómlegt!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































