Það er svo geggjað að geta stytt sér leið með kvöldmatinn og þessi hér uppskrift er algjör snilld ef þú hefur lítinn tíma til að elda en vilt um leið næringarríkan og góðan mat!
Svo fljótlegt og gott!

„Fried Rice“ á fimmtán mínútum
Fyrir 4 manns
- 4 x pokar af Tilda Egg Fried Rice
- 500 g eldaður kjúklingur
- 125 g ferskur baby maís
- 3 msk. sweet chili sósa
- 3-4 msk. soyasósa
- 1 msk. fljótandi Oscar nautakraftur
- Salt, pipar, hvítlauksduft
- Ólífuolía til steikingar
- Kasjúhnetur (til að toppa með)
- Vorlaukur (til að toppa með)
- Byrjið á því að skera kjúklinginn niður og steikja við meðalhita upp úr ólífuolíu, leggið til hliðar. Ég notaði eldaðar lundir sem ég keypti tilbúnar en þið getið notað hvaða kjúkling sem þið viljið.
- Steikið næst grjónin við meðalhita með smá skvettu af vatni og smá ólífuolíu.
- Skerið maísinn niður og bætið út á grjónin ásamt soya, sweet chili og nautakrafti, kryddið síðan til eftir smekk og blandið öllu vel saman.
- Skerið niður vorlauk og kasjúhnetur og toppið síðan grjónin með því að vild.

Þessi grjón eru soðin og tilbúin beint á pönnuna!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































