Súrdeigssnittur með burrata og nektarínum



⌑ Samstarf ⌑
snittur með burrata

Ég elska nýbökuðu súrdeigsbrauðin sem fást í bakaríinu í Hagkaup! Þau eru bökuð daglega og eru svooooo góð!

Mmmm….

snittur með burrata

Hér hafið þið undursamlega útgáfu af snittum en hugmyndina sá ég hjá Halfbaked Harvest en ég elska einmitt uppskriftirnar hennar!

Súrdeigssnittur með burrata og nektarínum

Uppskrift gefur 8 snittur

  • 4 sneiðar nýbakað súrdeigsbrauð frá Hagkaup
  • 30 g parmesanostur (rifinn)
  • 30 g Primadonna ostur (rifinn)
  • 3 hvítlauksrif (rifin)
  • 60 g smjör (brætt) + 1 msk
  • 6 hráskinkusneiðar
  • 1 askja klettasalat frá Vaxa
  • 2 nektarínur
  • 1 msk. hunang
  • Chilli hunang eftir smekk
  • 3 x stór burrata kúla (eða 6 minni)
  • Basilika til skrauts
  • Salt + pipar
  1. Byrjið á því að hita ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír í ofnskúffu.
  2. Rífið báðar tegundir af osti á pappírinn, einnig hvítlauksrifin og setjið um 2 msk. af brædda smjörinu yfir og blandið öllu saman og dreifið jafnt úr.
  3. Skerið brauðsneiðarnar í tvennt og leggið ofan á ostinn á bökunarpappírnum, setjið síðan smá af smjöri yfir hverja sneið.
  4. Slítið hráskinkuna aðeins í sundur og setjið á milli brauðsneiðanna og í kringum þær og bakið síðan allt saman í um 12 mínútur.
  5. Skerið á meðan nektarínurnar í sneiðar og steikið upp úr 1 msk. af smjöri, saltið og piprið og setjið 1 msk. af hunangi saman við í lokin.
  6. Þegar brauðið er tilbúið má rífa niður burrata ost á hverja sneið, setja smá klettasalat, hráskinku og chilli hunang. Toppið loks með basilikulaufum.
gott súrdeigsbrauð

Þetta klassíska hentaði vel fyrir þessar snittur en mitt uppáhald er súrdegisbrauðið með jalapeno og döðlum, það er eitthvað annað gott!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun