Það er alltaf gaman að gera nýjar útfærslur af taco og þessi hér er virkilega skemmtileg. Að pensla tortillurnar með hvítlaukssmjöri og toppa með rifnum osti gerir þetta extra djúsí og gott!
Mmmm svo gott!

Hvítlauks- osta taco í ofni
Fyrir um 4 manns
- 8 x meðalstórar tortillakökur
- 500 g nautahakk
- 1 x laukur
- 200 g nýrnabaunir
- 200 g maísbaunir
- 2 msk. tómatpúrra
- 3 msk. taco krydd
- Salt, pipar, hvítlauksduft
- 100 ml vatn
- 1 msk. fljótandi nautakraftur
- 300 g rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
- Ólífuolía til steikingar
- Hvítlaukssmjör: 40 g smjör, 3 x hvítlauksgeiri, 1 msk. kóríander
- Annað meðlæti: Guacamole, salsasósa, nachosflögur
- Byrjið á því að útbúa hvítlaukssmjörið með því að bræða smjör, rífa niður hvítlauk og saxa kóríander. Penslið botninn á ofnskúffu með smjörinu (til að raða tortillunum beint á).
- Hitið ofninn í 200°C.
- Saxið niður laukinn og steikið ásamt hakkinu upp úr ólífuolíu. Kryddið með taco kryddi, salti, pipar og hvítlauksdufti.
- Þegar hakkið er steikt má bæta tómatpúrru, vatni og krafti á pönnuna ásamt báðum tegundum af baunum og blanda vel saman.
- Skerið tortilla kökurnar í tvennt, setjið um 2 msk. af hakkblöndu á miðjuna á hverri og vel af rifnum osti. Brjótið hliðarnar þétt yfir miðjuna svo úr verði þríhyrnt taco og leggið í penslaða ofnskúffuna. Penslið síðan aftur yfir tortilla kökurnar með hvítlaukssmjöri og toppið með rifnum osti.
- Bakið í um 15 mínútur eða þar til kantarnir fara aðeins að gyllast.
- Njótið með fersku guacamole, salsasósu og nachos flögum.

Mæli með að þið prófið þessa úrfærslu á næsta „Taco-kvöldi“



































