Ólífu ídýfa



⌑ Samstarf ⌑
ostabakki hugmyndir

Hér kemur fullkomin ídýfa undir spænskum áhrifum sem hentar vel sem forréttur eða hluti af osta- eða veisluborði.

Mmm….

snitta með osti

Ólífu ídýfa

  • 4 msk. jómfrúarolía
  • 2 msk. Filippo Berio balsamik gljái
  • 100 g ólífur að eigin vali (saxaðar)
  • 80 g salami pylsa að eigin vali (skorin í litla bita)
  • 130 g havarti ostur (skorinn í litla bita)
  • 90 g mozzarella perlur (skornar í bita)
  • 1 msk. basilika (söxuð)
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Baguette (sneitt og ristað)
  1. Sneiðið baguette brauðið niður, setjið smá ólífuolíu yfir og ristið við 200°C í 3-4 mínútur og leggið til hliðar.
  2. Blandið öllum öðrum hráefnum saman og njótið með baguette brauðinu og Muga rauðvíni.
rauðvín og ostar

Ef þið elskið salami, osta og rauðvín þá verðið þið að prófa!

brushetta hugmynd

Namm!

Ólífu ídýfa

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun