Skyrskál með berjum



⌑ Samstarf ⌑
Skyrskál með berjum

Það er svo einfalt og gott að útbúa skyrskál heima hjá sér því þá getur maður sett eins mikið af toppings og því sem manni þykir gott á hana! Ég geri reglulega svona þegar stelpurnar koma heim úr skólanum og sem síðdegissnarl. Stundum skipti ég þessu niður í fleiri og minni skálar svo þið getið haft þetta alveg eins og ykkur hentar!

Skyrskál heimagerð

Skyrskál með berjum

Uppskrift dugar í 3-4 skálar

  • 1 poki Salling frosin ber (blönduð)
  • 1 poki Salling frosin jarðarber
  • 3 msk. vanillumjólk
  • 1 x stór vanillu KEA skyrdós
  • Salling granóla að eigin vali
  • Salling hnetusmjör gróft
  • Salling döðlur
  • Jarðarber + bláber
  • Kókosflögur
  • Suðusúkkulaði
  1. Saxið niður suðusúkkulaði (um 20 g) ásamt því að skera niður döðlur, jarðarber og taka allt hráefni til.
  2. Setjið báða pokana af frosnu berjunum í blandarann ásamt vanillumjólk.
  3. Blandið vel saman, það þarf að stoppa og skafa niður nokkrum sinnum niður á milli þar til slétt og þykk ávaxtablanda myndast.
  4. Raðið saman skálinni ykkar: Vanilluskyr í botninn, ávaxtablanda yfir og svo allt hitt eins og hugurinn girnist.
Skyrskál uppskrift

Ég er að elska úrvalið af Salling vörunum og allar þessar góðu granóla poka sem eru í boði! Þessi er æði en þið getið að sjálfsögðu valið þann poka sem ykkur þykir bestur.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun