Heitt súkkulaði með appelsínu- og kanilkeim



⌑ Samstarf ⌑
Heitt súkkulaði uppskrift

Það er fátt betra á köldum haustdögum en heitt súkkulaði. Hér er útfærsla með appelsínu- og kanilkeim sem yljar um hjartarætur.

Mmm….

Heitt kakó uppskrift

Heitt súkkulaði með kanil og appelsínukeim

Uppskrift dugar í tvær Síríus könnur

  • 550 ml nýmjólk
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði með appelsínubragði
  • 2 tsk. smjör
  • 2 msk. appelsínusafi
  • 1 msk. sykur
  • ½ tsk. kanill
  • ¼ tsk. salt
  • Þeyttur rjómi (á toppinn)
  • Rifinn appelsínubörkur (á toppinn)
  • Saxað suðusúkkulaði (á toppinn)
  1. Setjið mjólk, báðar tegundir af súkkulaði, smjör, appelsínusafa, sykur, salt og kanil í pott og hitið þar til súkkulaðið er bráðið.
  2. Skiptið niður í könnur og toppið með þeyttum rjóma, rifnum appelsínuberki og söxuðu súkkulaði.
heitt súkkulaði með appelsínukeim

Það var skemmtileg tilbreyting að skipta hluta af suðusúkkulaðinu út fyrir appelsínu suðusúkkulaðið og þetta var eins og lúxus kakóbolli á fínasta kaffihúsi…..nema betri!

Ekta heitt kakó uppskrift

Megið síðan endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun