Haustið er mætt og mömmumaturinn líka. Ég elska að gera svona nostalgíu uppskriftir fyrir ykkur reglulega og þrátt fyrir að hafa sett uppskriftir á heimasíðuna í að verða 13 ár er enn ýmislegt sem vantar!
Snitzel er hins vegar komið hér fyrir ykkur í öllu sínu veldi og ég vona þið njótið.

Snitzel á gamla mátann
Fyrir um 4 manns
Grísasnitzel uppskrift
- 800 g úrbeinaðar grísakótilettur, grísasnitzel eða grísalund
- 70 g hveiti
- 3 egg
- 250 g brauðraspur
- Salt + pipar
- Hvítlauksduft og paprikuduft
- 60 g smjör
- 6 msk. ólífuolía
- Byrjið á því að berja kjötið niður með kjöthamri þar til það er um 1 cm á þykkt. Fjarlægið fituröndina ef þið notið kótilettur.
- Kryddið kjötið vel á báðum hliðum, saltið sérstaklega vel.
- Dýfið því næst í hveiti, pískað egg og loks brauðrasp.
- Hitið smjör og olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið hvert snitzel í um 2 mínútur á hvorri hlið eða þar til það fer að gyllast, varist að elda of mikið. Steikin er þunn og þarf stuttan eldunartíma.
- Gott er að ausa síðan smjörblöndunni yfir kjötið og grænmetið.
Meðlæti
- ORA grænar baunir
- ORA rauðkál
- ORA gular baunir
- Soðnar kartöflur
- Rabarbarasulta
- Sítrónubátar

Grænar baunir eru mitt uppáhald með öllum mömmumat!

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM!


































