Hér kemur helgarútgáfa af lasagna sem bragðast alveg hreint dásamlega!
Sá einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, John Gregory Smith gera þetta „Smashed Boozy Lasagne“ og varð að prófa!

Rauðvínslegið lasagna
Fyrir 4-6 manns
Lasagna grunnur
- 800 g nautahakk
- 200 g lasagnaplötur
- 1 laukur
- 4 hvítlauksrif
- 100 g tómatpúrra
- 400 g hakkaðir tómatar í dós
- 350 ml vatn
- 3 msk. fljótandi Oscar nautakraftur
- 300 ml Muga rauðvín
- 1 msk. oregano
- 1 msk. timian (ferskt)
- 2 tsk. hvítlauksduft
- Salt og pipar eftir smekk
- Ólífuolía til steikingar
- Gouda ostur (rifinn)
- Ostasósa (sjá uppskrift að neðan)
Ostasósa
- 40 g smjör
- 40 g hveiti
- 400 ml nýmjólk
- 100 g rifinn cheddar ostur
- Hitið ofninn í 180°C.
- Byrjið á því að saxa niður laukinn og steikja hann í ólífuolíu við meðalhita þar til hann mýkist.
- Rífið hvítlaukinn saman við í lokin og steikið stutta stund áfram.
- Bætið tómatpúrru, oregano, timian og hvítlauksdufti á pönnuna, blandið vel og saltið og piprið eftir smekk.
- Hellið nú rauðvíninu yfir laukinn og hækkið aðeins hitann. Leyfið þessu að malla við meðalháan hita nokkrar mínútur eða þar til rauðvínið er gufað upp að hluta til.
- Blandið þá hökkuðum tómötum, vatni og nautakrafti saman við og blandið vel.
- Að lokum fer nautahakkið saman við, lokið á pottinn og inn í ofn í eina og hálfa klukkustund.
- Þegar nokkrar mínútur eru eftir af eldunartímanum má útbúa ostasósuna og taka til rifinn ost til að setja yfir.
- Bræðið smjör og hveiti saman í „hveitibollu“ og pískið nýmjólkinni næst saman við.
- Hellið cheddar ostinum útí mjólkurblönduna og hrærið þar til osturinn er bráðinn, þá er sósan tilbúin.
- Hellið nú lasagna-blöndunni yfir í eldfast mót, brjótið lasana plöturnar niður og dreifið yfir hakkið, blandið síðan öllu vel saman.
- Næst fer ostasósan yfir allt ásamt rifnum osti og aftur inn í ofn í um 20 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
- Njótið með góðu brauði og Muga rauðvíni.

Dætur mínar sögðu að þetta væri eins og blanda af hægeldaða nautinu í rauðvínssósunni og lasagna, held það verði að teljast nokkuð góð blanda.

Svo gott!
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































