Súkkulaði brownie með draugakremi



⌑ Samstarf ⌑
súkkulaðikaka

Þessi hér er algjör hrekkjavökubomba! Frosting krem á brownie köku með ganache, held það sé ekkert sem getur klikkað með þessari þrennu!

Mmmm…

brownie kaka

Súkkulaði brownie með draugakremi

Brownie kaka uppskrift

  • 210 g smjör
  • 220 g Síríus suðusúkkulaði
  • 300 g sykur
  • 4 egg
  • 100 g hveiti
  • 40 g bökunarkakó
  • ½ tsk. salt
  • 100 g Síríus rjómasúkkulaði (saxað gróft)
  1. Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír í botninn á um 22 cm stóru smelluformi (hringformi). Spreyið það vel að innan með matarolíuspreyi.
  2. Bræðið suðusúkkulaði og smjör í vatnsbaði og leyfið hitanum síðan aðeins að rjúka úr blöndunni.
  3. Þeytið egg og sykur þar til létt og ljós blanda myndast. Hellið súkkulaðibráðinni saman við í mjórri bunu og hrærið varlega á meðan.
  4. Næst má sigta hveiti og kakó og blanda varlega saman við og bæta saltinu saman við.
  5. Að lokum má vefja saxaða rjómasúkkulaðinu saman við deigið með sleikju.
  6. Hellið í formið og bakið í 35-40 mínútur eða þar til prjónn kemur úr með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
  7. Kælið kökuna alveg áður en þið setjið ganache og krem yfir hana.

Ganache súkkulaðibráð

  • 100 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
  • 50 ml rjómi
  1. Saxið súkkulaðið smátt niður og setjið í litla skál.
  2. Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið, leyfið að standa í um 2 mínútur og pískið síðan saman.
  3. Hellið kreminu ofan á kælda kökubotninn og dreifið því jafnt yfir, leyfið að leka örlítið niður hliðarnar.

Frosting krem og draugaskreyting

  • 250 g sykur
  • 70 ml sýróp
  • 40 ml vatn
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 3 eggjahvítur
  • Sykuraugu
  1. Hitið sykur, sýróp og vatn saman í potti. Hitið að suðu og lækkið svo hitann, hrærið stanslaust í þar til sykurinn er bráðinn. Þetta tekur um 5 mínútur.
  2. Hellið sykurblöndunni yfir í könnu og leyfið hitanum að rjúka úr í nokkrar mínútur, hrærið reglulega í blöndunni á meðan.
  3. Stífþeytið næst eggjahvíturnar og lækkið síðan hraðann niður í hægasta á hrærivélinni.
  4. Hellið volgri sykurblöndunni varlega saman við í mjórri bunu.
  5. Þeytið síðan að nýju þar til stífir toppar myndast.
  6. Bætið vanilludropum saman við í lokin og þeytið aðeins áfram.
  7. Smyrjið um 1/3 af kreminu yfir botninn en ekki alveg út á kantana, skiljið eftir smá kant allan hringinn.
  8. Setjið restina af kreminu í sprautupoka með stórum hringlaga stút (um 2 cm í þvermál) og sprautið drauga ofan á kremið.
  9. Skreytið með því að setja tvö sykuraugu á hvern draug og kælið síðan kökuna.
súkkulaði brownie með ganace

Suðusúkkulaði gerir lífið einfaldlega betra!

hvítt kókosbollukrem

Þetta krem sko…..namm!

hvítt flöffí krem

Mæli með þið prófið fyrir næsta hrekkjavökupartý!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun