Chili Con Carne



⌑ Samstarf ⌑
chili con carne uppskrift

Það er ótrúlega einfalt og ljúffengt að útbúa Cili Con Carne þegar maður getur keypt grunninn tilbúinn! Það tók líklega um 15 mínútur að útbúa þennan rétt og það sem ég elska vörurnar frá Stonewall Kitchen. Ég er alltaf að kynnast nýjum vörum frá þeim og hvernig getur þetta bara allt verið svona mikið gúrme og gott!

Slurp!

chili con carne uppskrift

Chili Con Carne

Fyrir um 4 manns

  • 500 g nautahakk
  • 1 krukka Chili Starter frá Stonewall Kitchen
  • 400 g nýrnabaunir
  • Sýrður rjómi
  • 2 x Avókadó
  • Piccolo tómatar
  • Rifinn ostur
  • Kóríander
  • Nachos flögur
  • Ólífuolía til steikingar
  • Salt og pipar
  1. Steikið hakkið upp úr olíu, saltið og piprið.
  2. Hellið þá nýrnabaunum (skolið þær fyrst) og Chili Starter saman við og leyfið að malla á meðan þið skerið niður grænmetið.
  3. Raðið saman í skál eins og ykkur þykir best!
chili con carne uppskrift

Þessi sósa er undursamleg!

chili con carne uppskrift

Einfalt, hollt og gott!

chili con carne uppskrift
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun