Hafrabitar með kókos og súkkulaði



⌑ Samstarf ⌑
Hafrabitar með kókos og súkkulaði

Ég elska hafrakökur, hafrastykki, hjónabandssælu og allt þar á milli. Þessi tilraun hér höfðaði því einstaklega vel til mín og þið verðið að prófa!

Mmm…

Hafrabitar með kókos og súkkulaði

Hafrabitar með kókos og súkkulaði

  • 200 g haframjöl
  • 70 g kókosmjöl
  • 250 g hveiti
  • 250 g smjör (við stofuhita)
  • 100 g sykur
  • 100 g púðursykur
  • 200 g Rapunzel Kokos-Mandel Creme
  • 100 g dökkt súkkulaði (saxað) + 30 g bætt í lokin
  • 60 g rjómasúkkulaði (saxað)
  • Ristaðar kókosflögur (til að toppa með)
  • PAM matarolíusprey
  1. Hitið ofninn í 170°C og setjið bökunarpappír í botninn á ferköntuðu kökuformi (um 25×25 cm). Spreyið formið að innan með matarolíuspreyi.
  2. Setjið haframjöl, kókosmjöl, hveiti, smjör og báðar tegundir af sykri í hrærivélarskálina.
  3. Hrærið með K-inu þar til vel blandað.
  4. Þrýstið helmingnum af hafrablöndunni í botninn á forminu.
  5. Smyrjið kókos smyrjunni yfir botninn og dreifið úr saxaða súkkulaðinu.
  6. Setjið þá restina af hafrablöndunni yfir og bakið í um 45 mínútur eða þar til kantarnir eru orðnir vel gylltir.
  7. Takið út og leyfið að kólna aðeins niður í forminu, dreifið úr bræddu súkkulaði yfir alla kökuna og stráið smá kókosflögum yfir.
  8. Þegar kakan hefur náð að kólna aðeins er auðveldara að lyfta henni upp úr forminu og skera í bita.
  9. Dásamlegt er að njóta kökunnar á meðan hún er enn volg en bitana má annars geyma við stofuhita í nokkra daga í vel lokuðum umbúðum.
Hafrabitar með kókos og súkkulaði

Þessi kókossmyrja er góð í alls kyns eftirrétti, út á gríska jógúrt, ofan á hrískökur eða hvað sem ykkur dettur í hug!

Hafrabitar með kókos og súkkulaði

Namm!

Hafrabitar með kókos og súkkulaði

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnlegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun