Kjúklingabringur með mangó-avókadó salsa



⌑ Samstarf ⌑
Kjúklingur með burrata

Það er eitthvað við góða marineringu og þunna kjúklingabringu og ekki skemmir fyrir að setja ferskt og gott salsa yfir hana! Að mínu mati var síðan ómissandi að hafa ristað baguette með réttinum og gott að setja bæði mangó-avókadó salsa og burrata osti ofan á brauðið og njóta með kjúklingnum.

Mmmm…..

Burrata kjúklingur

Kjúklingabringur með mangó-avókadó salsa

Fyrir um 4 manns

Balsamik marineraðar kjúklingabringur

  • 4 kjúklingabringur
  • 4 msk. balsamik edik
  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 msk. hunangs dijon sinnep
  • 3 hvítlauksrif (rifin)
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1 tsk. oregano
  • ½ tsk. pipar
  1. Byrjið á því að berja kjúklingabringurnar með kjöthamri þar til þær fletjast út í um 1 cm þykkar sneiðar.
  2. Hrærið öllum öðrum hráefnum saman í skál og blandið vel af marineringu á allar bringurnar.
  3. Leyfið að marinerast í að minnsta kosti 1 klukkutíma eða yfir nótt.
  4. Hitið ofninn í 200°C og grillstillingu.
  5. Leggið bringurnar á grind (hafið skúffu undir) og eldið í um 15 mínútur, leyfið að hvíla í nokkrar mínútur áður en þið skerið niður.
  6. Einnig má grilla bringurnar á hefðbundnu grilli ef þið kjósið heldur.
  7. Toppið með mangó-avókadó salsa, burrata osti og balsamik gljáa.

Mangó-avókadó salsa

  • 2 x þroskað mangó
  • 2 x þroskað avókadó
  • 2 msk. söxuð basilika
  • 2 msk. hunang
  • 1 tsk. salt
  • ¼ tsk. pipar
  1. Skerið bæði mangó og avókadó niður í litla teninga.
  2. Blandið restinni af hráefnunum saman við ávextina í skál. Best er að nota sleikju og blanda varlega saman.
  3. Toppið hverja bringu með vel af mangó-avókadó salsa, burrata kúlu og balsamik gljáa. Notið restina af salsanu með ristuðu baguette brauði.

Önnur hráefni

  • 2 x 2 litlar Burrata kúlur (samtals 4)
  • Baguette brauð + ólífuolía og salt
  • Balsamik gljái
  • Basilika til skrauts
  1. Skerið baguette niður í sneiðar,  setjið smá ólífuolíu og salt á sneiðarnar og grillið með kjúklingabringunum þegar um 3 mínútur eru eftir af eldunartímanum.
  2. Toppið hverja bringu + salsa með burratakúlu, balsamik gljáa og basilikulaufi.
Kjúklingur með burrata

Namm!

Kjúklingabringur með burrata
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun