Það er alltaf gaman að prófa nýtt meðlæti með grillmat og þetta makkarónusalat var algjör snilld! Ég hef ekki útbúið svona áður en rakst á útfærslu á netinu um daginn og gat ekki hætt að hugsa um þetta fyrr en ég myndi prófa.

Hér er því komin mín útfærsla af makkarónusalati fyrir ykkur að njóta. Margir eru með sellerí í því líka eða annað grænmeti svo þið getið sannarlega leikið ykkur aðeins með innihaldið.

BBQ kjúklingaspjót og makkarónusalat
Fyrir um 4 manns
BBQ kjúklingaspjót
- 900 g úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry (1 poki)
- 150 ml Caj P grillolía (original)
- ½ flaska Heinz Sweet BBQ sósa
- Setjið kjúklingalærin í skál og hellið grillolíunni yfir, blandið vel saman og leyfið að marinerast í ísskáp í að minnsta kosti klukkustund, yfir nótt er líka í lagi, bara plasta/loka ílátinu vel.
- Þræðið síðan 2 læri upp á hvert grillspjót og grillið á heitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið, penslið 1 x með BBQ sósu á meðan þið grillið (um 1 msk. á hvora hlið).
- Takið síðan af grillinu, penslið aftur BBQ sósu yfir og leyfið að hvíla í nokkrar mínútur áður en þið njótið með makkarónusalati.
Makkarónusalat
- 350 g ósoðið makkarónupasta
- ½ rauðlaukur
- 3 msk. púrrulaukur
- 2 tómatar
- 2 gulrætur
- ½ rauð paprika
- 1 msk. steinselja
- 130 g majónes
- 70 g sýrður rjómi
- 30 g púðursykur
- 1 msk. sítrónusafi
- 1 msk. dijon sinnep
- 1 tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. salt
- ½ tsk. pipar
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka, leyfið vatni að leka alveg af þeim síðan áður en þið notið í salatið.
- Pískið á meðan majónes, sýrðan rjóma, púðursykur, dijon sinnep og krydd saman í skál og geymið.
- Skerið allt grænmetið smátt niður (rífið gulræturnar gróft) og blandið síðan öllu saman í skál með sleikju.
- Geymið í kæli fram að notkun.

Þessi BBQ sósa er mín allra uppáhalds!

Ísköld Stella smellpassar síðan með þessari máltíð!

Mmm…

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan


































