Hér er á ferðinni ekta vetrarmatur. Kartöflumús og brún sósa er eitthvað sem flestir elska og þessi réttur er dásamlega ljúffengur!

Kjúklingur í brúnni sósu með kartöflumús
Fyrir um 4 manns
Kjúklingur í brúnni sósu uppskrift
- 1 poki Rose Poultry kjúklingalundir (um 700 g)
- ½ laukur
- 350 g sveppir (blandaðir)
- 3 hvítlauksrif
- 2 msk. ferskt timian (saxað)
- 300 ml vatn
- 2 msk. Oscar fljótandi nautakraftur
- 200 ml rjómi
- Um 4 msk. maizenamjöl
- Ólífuolía til steikingar
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Byrjið á því að steikja lundirnar upp úr ólífuolíu og krydda eftir smekk. Brúnið vel á öllum hliðum og færið yfir á disk.
- Skerið lauk og sveppi niður, steikið á sömu pönnu (ekki þrífa hana á milli), bætið ólífuolíu við eftir smekk og kryddið vel, eldið við meðalháan hita þar til sveppir og laukur mýkist.
- Rífið þá hvítlauksrifin og setjið þau ásamt timian saman við og steikið stutta stund til viðbótar.
- Næst má hella vatni, krafti og rjóma á pönnuna og ná upp suðunni að nýju, þykkja eftir smekk með maizenamjöli og lækka hitann síðan alveg niður og leyfa að malla í um 10 mínútur, kryddið meira ef þurfa þykir.
- Berið fram með kartöflumús!
Kartöflumús uppskrift
- Um 1 kg kartöflur
- 40 g smjör
- 2 msk. sykur
- 1 tsk. salt
- Um 150 ml nýmjólk
- Sjóðið og flysjið kartöflurnar (eða öfugt, það má líka).
- Setjið þær í hrærivélarskálina ásamt smjöri, sykri og salti og blandið saman á lægstu stillingu.
- Bætið mjólkinni saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.

Ungir sem aldnir féllu fyrir þessum rétti!

Mmmm….

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































