Ómæ þessi ostakaka minnir mig á hnetu- og karamellujógúrt í bland við kaffijógúrt, sem ég elska bæði afar mikið svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig mér fannst þessi kaka, hahaha!

Pekanhnetu ostakaka
Fyrir 10-12 manns
Karamellu pekanhnetur
- 200 g Til hamingju pekanhnetur
- 50 g púðursykur
- 20 g smjör
- Bræðið sykurinn á pönnu og blandið smjörinu saman við þegar hann er nánast bráðinn.
- Lækkið hitann aðeins og hrærið þar til sykurinn er uppleystur að mestu og hrærið pekanhnetunum þá vel saman við.
- Hellið hnetublöndunni á bökunarpappír og setjið kæli til að geta nýtt í botninn og geymið restina fyrir skreytingu.
Botn
- 200 g Mc Vities hafrakex
- 100 g karamellu pekanhnetur (sjá uppskrift að ofan)
- 70 g smjör
- Brjótið hafrakexið aðeins niður í höndunum og setjið það í blandara/matvinnsluvél ásamt hnetunum. Maukið niður þar til blandan hefur fengið á sig sandáferð.
- Hellið þá í skál og blandið bræddu smjöri saman við.
- Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi, spreyið það að innan með matarolíuspreyi og hellið kexblöndunni ofan í.
- Þjappið í botninn og aðeins upp hliðarnar og setjið í ísskáp/frysti á meðan þið útbúið fyllinguna.
Fylling og skreyting
- 500 g rjómaostur (við stofuhita)
- 120 g púðursykur
- 90 g flórsykur
- 4 gelatínblöð (+ 50 ml uppáhellt kaffi)
- 1 vanillustöng (fræin)
- 250 ml þeyttur rjómi
- Byrjið á því að leggja gelatínblöðin í kalt vatn í um 15 mínútur.
- Hellið næst uppáhelltu kaffinu í pott og haldið suðunni á meðan þið hrærið gelatínblöðin saman við, eitt í einu þar til þau eru uppleyst. Hellið blöndunni yfir í skál og leyfið vökvanum að ná stofuhita.
- Þeytið næst saman rjómaost, púðursykur, flórsykur og fræin úr vanillustönginni.
- Næst má hella gelatínvökvanum saman við í mjórri bunu og hræra rólega áfram.
- Að lokum má vefja þeytta rjómanum varlega saman við með sleikju og hella síðan blöndunni yfir kexbotninn í forminu og slétta úr eins og unnt er.
- Geymið í kæli í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt, takið úr forminu og skreytið síðan með restinni af karamellu pekanhnetunum.

Það passaði vel að sykra pekanhneturnar og hafa þær í botninum og síðan er fallegt að skreyta með þeim líka.



































