Ég elska Betty Crocker og að leika mér með kökumix! Hér setti ég smá twist á innihaldið og útbjó síðan dýrindis rjómaostakrem og útkoman var undursamleg! Valentínusardagurinn nálgast og því ákvað ég að setja hana í hjartaform að þessu sinni til að gefa slíka hugmynd en kakan má fara í hvernig form sem er!

„Red Velvet“ kaka með rjómaostakremi
Red Velvet kaka uppskrift
- 1 x Betty Crocker Red Velvet kökumix
- 3 egg
- 100 ml súrmjólk
- 100 ml Isio4 matarolía
- 100 ml vatn
- 2 tsk. vanillusykur
- Hitið ofninn í 160°C.
- Setjið allt nema kökumixið í hrærivélarskálina og blandið saman.
- Bætið kökumixinu saman við og hrærið áfram í um 2 mínútur, skafið niður hliðarnar á milli.
- Smyrjið 2 x um 20 cm kökuform vel að innan, skiptið deiginu jafnt niður í formin og bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
- Kælið og skafið ofan af botnunum áður en þið útbúið kremið.
Rjómaostakrem uppskrift
- 150 g smjör við stofuhita
- 500 g flórsykur
- 240 g rjómaostur við stofuhita
- 2 tsk. vanilludropar
- Setjið smjör og um helminginn af flórsykrinum í hrærivélarskálina og þeytið vel, skafið niður á milli.
- Bætið þá restinni af flórsykrinum saman við ásamt rjómaosti og vanilludropum, hrærið vel og smyrjið síðan um 1 cm þykku lagi á milli botna og síðan líka allan hringinn.
- Fallegt er að skreyta kökuna með ferskum blómum.
- Geymið kökuna í kæli fram að notkun.

Mmmm, hér er nákvæmlega ekkert sem getur klikkað!



































