Mozzarella túlípanar



⌑ Samstarf ⌑
tómatar basilíka og mozzarella

Tómatar og mozzarella fara afar vel saman! Um daginn rakst ég á þessa hugmynd á netinu og hreinlega varð að prófa. Þetta var einfalt og fallegt og vöndurinn var ekki lengi að hverfa á þessu heimili! Gott er að bera túlípantabúntið fram með ristuðu baguette og pestó.

hugmyndir fyrir ostabakka

Mozzarella túlípanar

  • 15 kirsuberjatómatar
  • 15 mozzarellakúlur frá Gott í matinn
  • Basilíka til skrauts
  1. Skerið kross ofan í hvern tómat, ekki alveg niður heldur eins og ¾ af honum.
  2. Skafið innan úr með endanum á skeið eftir fremsta megni.
  3. Komið einni mozzarellakúlu fyrir í tómatinum og stingið prjóni í gegn um hvoru tveggja.
  4. Endurtakið og raðið í fallegt glas, skreytið með basilíkulaufum.
tómatar og mozzarella hugmyndir

Mmmm þetta var bæði fallegt og gott!

mozzarella túlípanar

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun