Það er allt of langt síðan ég gerði skyrköku og eftir að við fengum uppáhalds skyrkökuna okkar í afmæli hjá Stellu litlu frænku um daginn ákvað ég að tími væri kominn fyrir eina slíka.
Sumarið hlýtur að vera handan við hornið og þessi er sannarlega einföld, sumarleg og ljúffeng!

Skyrkökur með Nóakroppi
Uppskrift dugar í 8-10 glös
Botn
- 150 g kanilkex
- 100 g Síríus Nóakropp
- 40 g smjör (brætt)
- Setjið kex og Nóakropp í blandara/matvinnsluvél og blandið þar til áferðin minnir á sand.
- Hellið kexblöndunni í skál og bræddu smjöri yfir, blandið vel og skiptið niður í botninn á glösunum, leyfið að kólna niður á meðan annað er undirbúið.
Skyrkaka & skreyting
- 650 g bláberja- og jarðarberjaskyr
- 600 ml rjómi
- Síríus Nóakropp
- Stífþeytið rjómann og vefjið skyrinu varlega saman við með sleikju.
- Skiptið niður í glösin og sléttið úr.
- Toppið með vel af Nóakroppi og kannski líka fersku blómi ef við viljið.
- Gott er að kæla skyrkökuna í að minnsta kosti klukkustund áður en hennar er notið.

Mmm…



































