Einfalt og ljúffengt pasta er eitthvað sem engan svíkur!
Þessi pastaréttur er einfaldur og fljótlegur og því get ég lofað að allir í fjölskyldunni munu hann elska.

Tagliatelle með skinku og sveppum
Fyrir um 4 manns
- 400 g Dececco Tagliatelle
- 1 laukur
- 250 g kastaníusveppir
- 250 g skinka (niðurskorin)
- 100 g Philadelphia rjómaostur með graslauk
- 400 ml rjómi
- 1 msk. sítrónusafi
- Salt, pipar, hvítlauksduft
- Ólífuolía til steikingar
- Parmesan ostur (ofan á í lokin)
- Saxaður graslaukur (ofan á í lokin)
- Sjóðið tagliatelle samkvæmt leiðbeiningum.
- Steikið á meðan lauk og sveppi upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk.
- Bætið rjómaosti + rjóma á pönnuna þar til osturinn er bráðinn.
- Bætið skinkunni á pönnuna ásamt sítrónusafa, pasta og kryddið frekar ef þess er óskað.
- Berið fram með parmesan osti og söxuðum graslauk.

Ískalt rósavín fer einstaklega vel með þessum rétti, mmmm!

Gott er að bera réttinn fram með baguette brauði eða hvítlauksbrauði.

Mmm…

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































