Hér höfum við einfaldar og sumarlegar kjúklingavefjur með fersku og ljúffengu ananas salsa!

Kjúklingavefjur með ananas salsa
Uppskrift dugar í um 6 stórar vefjur
Kjúklingavefjur
- 1 pk stórar Old el Paso vefjur (6 stykki)
- 3 stórar kjúklingabringur
- Kjúklingakrydd/grillolía
- Sýrður rjómi
- Ananas salsa (sjá uppskrift að neðan)
- Lime majónes frá Hellmann‘s
- Grillið kjúklingabringurnar og kryddið/penslið eftir smekk, sneiðið niður.
- Smyrjið sýrðum rjóma á vefjurnar og skiptið kjúklingnum á milli þeirra.
- Næst kemur ananas salsa og loks smá lime majónes yfir allt saman.
Ananas salsa uppskrift
- 1 stór dós Dole ananasbitar (432 g)
- 250 g piccolo tómatar
- ½ rauðlaukur
- 1 stk jalapeño
- 1/3 agúrka
- ½ lime (safinn)
- 3 msk.kóríander (saxað)
- 1 msk. hunang
- Salt og pipar
- Saxið allt smátt niður og blandið varlega saman í skál með sleikju.
- Smakkið til með salti og pipar áður en þið setjið á vefjurnar.

Dole ananasinn er minn uppáhalds dósa ananas, hann er sætur, mjúkur og ljúffengur!

Mmmm…..



































