Hver elskar ekki einfaldan eftirrétt?

Þessi skyrkaka inniheldur aðeins 4 hráefni og er æðislega góð og einföld!

Vanillu skyrkaka með lakkrískeim
Uppskrift dugar í 8-10 glös
Botn og toppur
- 1 poki Pandakúlur með lakkrísbragði (licorice)
- ½ pk Oreokex (8 kökur)
- Saxið Pandakúlurnar smátt niður og setjið helminginn í skál með muldu Oreokexinu, geymið hinn helminginn fyrir toppinn.
- Setjið væna matskeið af Panda-kexmylsnu í botninn á hverju glasi.
- Fyllið með skyrköku og toppið með söxuðum Pandakúlum.
Skyrkaka
- 500 g vanilluskyr
- 500 ml þeyttur rjómi
- Blandið skyri og þeyttum rjóma saman og sprautið í glösin.

Hér gætuð þið í raun notað hvaða tegund af Pandakúlum sem þið viljið svo það má klárlega blanda saman eða nota sína uppáhalds!



































