Norðurland og Austurland



Við erum nýkomin úr þriðju hringferðinni okkar á fjórum árum þar sem við höfum lagt áherslu á mismunandi áfangastaði hverju sinni. Núna stoppuðum við í Varmahlíð, Hofsósi, Siglufirði, Árskógsströnd og Akureyri fyrir norðan og vorum síðan á Eiðum og Egilsstöðum fyrir austan. Hér fyrir neðan koma því alls kyns punktar um hvað er hægt að gera, gista, borða og fleira skemmtilegt ásamt allt of mikið af myndum fyrir áhugasama!

Á Instagram er ég búin að festa allt í HIGHLIGHTS fyrir þá sem vilja hraðskoða án texta!

Norðurland

Við byrjuðum rúntinn okkar á því að stoppa hjá mági mínum og fjölskyldu í Varmahlíð þar sem þau eiga hús. Veðrið var dásamlegt og við rúntuðum aðeins um, fórum í sund, fengum kaffi og köku hjá þeim í sveitinni og kíktum í Laugarmýri og keyptum vörur beint frá býli.

Þau keyrðu síðan með okkur á Hofsós þar sem við ákváðum að borða saman kvöldmat á veitingastaðnum Retro mathús því dóttir vinkonu minnar héðan úr Mosó var að vinna þar í sumar og okkur langaði að kíkja til hennar. Þar fengum við frábæran mat og áttum saman góða stund. Hér skildu síðan leiðir og þau fóru tilbaka í Varmahlíð og við áfram á Siglufjörð.

Siglufjörður

Við komum því ekki á fyrsta næturstað fyrr en seint um kvöld en við gistum á Sigló Hótel fyrstu tvær næturnar. Við höfum einu sinni áður gist þar þegar við fórum í skíðaferð með vinum okkar fyrir nokkrum árum svo það var gaman að prófa að vera þar um sumar líka. Þetta hótel er svo dásamlegt og hugsað út í öll smáatriði. Það einhvern vegin tekur utan um þig um leið og þú labbar inn og þarna er yndislegt að vera!

Næsta morgun byrjuðum við á ljúffengum morgunverði á hótelinu og kíktum síðan yfir á Síldarminjasafnið sem er hinumegin við götuna frá Sigló Hótel. Eftir það röltum við um þennan fallega bæ og kíktum í hádegismat í Aðalbakarí þar sem hægt er að fá súkkulaðihúðaða ástarpunga og kleinur ásamt alls kyns smurðu góðgæti.

Næst lá leiðin yfir í Fljótin í dýragarð sem heitir Brúnastaðir en þar geta börn fengið að fara inn fyrir girðingar hjá hinum ýmsu dýrum, klappað þeim og skoðað og litlan okkar elskaði það!

Heiti potturinn á Sigló Hótel er síðan dásamlegur og á svo fallegum stað beint fyrir framan hótelið með útsýni yfir sjóinn.

Við skelltum okkur því að sjálfsögðu í síðdegispott og fórum síðan í undur ljúffenga veislumáltíð á veitingastaðnum Sunnu sem er staðsettur á hótelinu. Þar fengum við fimm rétta veislu og var hver rétturinn á fætur öðrum betri!

Mmm…

Lítil kona var síðan búin að uppgötva Videoval og heimtaði auðvitað að fara þangað í nammi og ísferð bæði kvöldin, haha!

Árskógsströnd

Eftir tvær góðan nætur á Siglufirði fluttum við okkur örlítið norðar eða á Árskógsströndina á Krossa þar sem við höfum ansi oft komið áður. Frænka mín á þetta hús sem áður var í eigu foreldra hennar og eigum við reglulega saman dásamlegar stundir þar, hvort sem það er um sumar eða vetur. Systir mín bjó einnig á Dalvík í mörg ár svo við erum nokkuð kunnug þessu svæði.

Það voru hvolpar hjá frænda okkar í næsta húsi, við borðuðum góðan mat, fórum í göngu inn í Þorvaldsdal, kíktum í pottana á Hauganesi og borðuðum góðan fisk á Baccalá Bar.

Akureyri

Síðasti áfangastaðurinn á Norðurlandinu þetta skiptið var Akureyri. Við elskum að koma reglulega þangað hvort sem það er um sumar eða vetur, svo mikil afþreying í boði!

Við fórum í Jólahúsið og góðan göngutúr með nesti í Kjarnaskógi en þar er frábært leiksvæði fyrir börn.

Við kíktum einnig í Menningarhúsið Hof, í Lystigarðinn, Bryjuís, sundlaug Akureyrar og fleira skemmtilegt.

Við gistum í sögufrægu húsi í gamla bænum sem heitir Höepfnershús og það er virkilega gaman að sjá hvernig þau eru búin að gera þessi gömlu hús upp, halda sjarma þeirra en nútímavæða engu að síður.

Annað kvöldið okkar snæddum við síðan á veitingstaðnum Múlabergi með vinafólki okkar héðan úr hverfinu og ákváðum í stað þess að fá okkur aðalrétti að panta alls kyns smárétti og deila. Það er svo gaman að smakka smá af alls konar og litla veislan sem þetta var! Mæli sannarlega með heimsókn þangað bæði fyrir mat og drykk!

Það er sérhólf fyrir „desrétt“, sama hvað ég borða mikið þá er alltaf pláss fyrir slíkt!

Við hittum vini okkar frá Seattle og að sjálfsögðu kíktum við mægður í Glerártorg! Mér finnst alltaf smá eins og ég sé komin til útlanda þegar ég kem á Akureyri og það er fastur liður hjá okkur að fara og „sjoppa“ aðeins þar!

Ég gekk síðan á Súlur með vinkonum að norðan en þetta fjall er búið að vera á óskalistanum lengi!

Eiðar & Egilsstaðir

Frænka mín og fjölskylda keyptu gamla skólann á Eiðum fyrir nokkrum árum og hafa þau unnið afrek í að gera þessa aðstöðu upp og bjóða nú upp á ýmsa gistimöguleika þar. Við nágrannavinirnir höfum því síðustu tvö ár skellt okkur á „Eiðahátíð“ þangað til þeirra eins og við köllum það. Þau hafa verið með tónleika í hátíðarsalnum og síðan höfum við kíkt á upphitunartónleika á Bræðslunni í Borgarfirði Eystra svo það er mikið fjör.

Að þessu sinni ákváðum við að bæta aðeins í stuðið og vorum með 80’s partý á tónleikunum á Eiðum með Eyfa og kúreka/sumarkonuþema þegar við fórum á Bræðsluna.

„Það þarf að vera gaman því annars er svo leiðinlegt“!

Krakkarnir voru með okkur í 80’s partýinu á Eiðum og elskuðu þetta flipp og mikið sem það var gaman hjá okkur! Emmsjé Gauti kom síðan líka á Eiðar og sá kann að rífa upp stemminguna! Það voru allir komnir út á dansgólf, krakkrnir upp á svið og svaka stuð!

Á Eiðum fórum við í göngutúra og upp að tjörn á paddle-board og kajak og síðan er líka gaman að fara á bát um Eiðavatn en ekki gafst tími fyrir það í þessari ferð. Í fyrra voru krakkarnir líka að hoppa af brúnni í Eyvindará inn á Egilsstöðum svo það er næg afþreying í boði á þessu svæði.

Við kíktum í hreindýragarðinn inn á Egilsstöðum þar sem krakkanir fengu að halda á yrðlingum og gefa hreindýrum að borða, mæli með! Einnig fengum við okkur kvöldmat á Askur pizzeria og ég get svarið það að þetta eru með bestu pizzum landsins!

Við höfum nokkrum sinnum farið í VÖK og krakkarnir tóku ekki annað í mál en að við færum þangað aftur núna! „Getum við farið í sundið þar sem hægt er að hoppa í kalda vatnið og fá krap“, hahaha! Þar er notalegt að sitja í pottum, fá sér drykk og baða sig eftir góðan dag í sveitinni.

Eftir 10 daga á ferðalagi var síðan komið að heimferð að þessu sinni. Við tókum suðurleiðina heim og gáfum okkur 12 tíma í það ferðalag. Stoppuðum á Steinasafni Petru á Stöðvarfirði, hlupum aðeins í fjörunni við Vestrahorn og eftir það festist steinn í dekkinu hjá okkur og það var ónýtt! Við komum nánast á felgunni inn í Höfn þar sem Sölvi hjá Jökladekk bjargaði okkur með því að bíða eftir okkur við lokun á föstudegi og redda okkur nýju dekki undir bílinn.

Vestrahorn fallega…

Á Höfn stoppuðum við því í kvöldverð á Kaffi horninu og síðan héldum við ferðinni áfram. Komum við í Jökulsárlóni því það er alltaf jafn fallegt og síðan á Vík í Crépes en það verðið þið að prófa!

Þessi krúttlegi Crépes kofi stendur í brekkunni á leið úr út (inn í) bænum!

Jökulsárlón alltaf fallegt, þetta er án efa einn fallegasti áfangastaður landsins!

Takk fyrir að fylgjast með!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun