Marineraðir kjúklingabitar með fylltum kartöflum



⌑ Samstarf ⌑
grillaður kjúklingur

Marineraðar bringur og leggir eru fullkominn grillmatur að mínu mati! Það einfaldar eldamennskuna mikið að þurfa ekkert að krydda og stússast heldur skella þessu bara beint á grillið!

Bakaðar kartöflur með góðri fyllingu smellpassa síðan með kjúklingnum og ef þið viljið hafa eitthvað meira með þá er þetta agúrkusalat æðislegt og tilbúin köld sósa!

grillaður kjúklingur

Marineraðir kjúklingabitar með fylltum kartöflum

Fyrir um 4 manns

  • 1 pakki Ali hvítlauksmarineraðar kjúklingabringur
  • 1 pakki Ali kjúklingaleggir í hvítlauks- og kryddjurtamarineringu
  • 4 x bakaðar kartöflur
  • Rifinn Cheddar ostur
  • Sýrður rjómi
  • 6 sneiðar Ali beikon
  • Graslaukur (saxaður)
  • Agúrkusalat (sjá uppskrift að neðan)
  • Köld sósa
  1. Útbúið agúrkusalatið og geymið í kæli
  2. Bakið kartöflurnar og grillið beikonið, saxið það síðan smátt niður og takið til ásamt rifnum cheddar osti, sýrðum rjóma og söxuðum graslauk þar sem þetta er allt fyllingin í kartöflurnar. Gott er að skera aðeins úr kartöflunni til að meira góðgæti komist fyrir og auðveldara verði að blanda öllu saman.
  3. Grillið bringur og leggi, berið síðan fram með fylltum bökuðum kartöflum, agúrkusalati og kaldri sósu. Kjúklingabitanir og fylltu kartöflunar duga einnig vel sem máltíð, hitt er bara aukalega ef þið eruð í stuði.

Agúrkusalat

  • 250 g kirsuberjatómatar
  • 1 agúrka
  • 1 rauðlaukur
  • 3 msk. kóríander (saxað)
  • 70 ml virgin ólífuolía
  • 50 ml rauðvínsedik
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 tsk. hunangssinnep
  • 1 tsk. salt
  1. Skerið tómata, agúrku og lauk niður og setjið í skál ásamt kóríander.
  2. Hrærið ólífuolíu, ediki, rifnum hvítlauksrifjum, sinnepi og salti saman í skál og hellið yfir salatið, blandið saman.
grillaður kjúklingur

Fullkomnir bitar á grillið!

agúrkusalat

Þetta agúrkusalat kom skemmtilega á óvart og var góð tilbreyting frá klassísku salati.

grillaður kjúklingur

Það er gott að blanda saman bringum og leggjum í svona máltíð finnst mér.

grillaður kjúklingur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun