Espresso martini ostakaka



⌑ Samstarf ⌑
einföld ostakaka

Þessi ostakaka er ein sú allra besta sem ég hef smakkað! Það er einfalt að útbúa hana og skemmtilegt að nýta hugmyndina af þessum sívinsæla drykk og búa til úr honum eftirrétt.

Mmm….

ostakaka með kaffikeim

Espresso martini ostakaka

Uppskrift dugar í um 6 glös

  • 12 stk Oreo kexkökur
  • 40 g brætt smjör
  • 500 g rjómaostur við stofuhita
  • 160 g sykur
  • 1 msk. Síríus kakóduft + meira til skrauts
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 50 ml sterkt uppáhellt kaffi við stofuhita
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði brætt
  • 300 ml þeyttur rjómi
  • Kaffibaunir til skrauts
  1. Byrjið á því að mylja kexið í matvinnsluvél og hræra síðan smjörinu saman við og skiptið niður í botninn á glösunum.
  2. Stífþeytið rjómann og leggið til hliðar.
  3. Þeytið næst rjómaost, sykur, kakóduft og vanillusykur saman stutta stund.
  4. Blandið þá uppáhelltu kaffi og bræddu súkkulaði saman við og skafið vel niður á milli.
  5. Þegar rjómaostablandan er orðin slétt og jöfn má vefja þeytta rjómanum saman við hana með sleikju.
  6. Skiptið ostakökublöndunni á milli glasanna og sléttið úr.
  7. Gott er að kæla ostakökuna í að minnsta kosti 3 klukkustundir (eða yfir nótt) og sigta síðan kakóduft yfir og skreyta hvert glas með þremur kaffibaunum.
góð ostakaka í glasi

Síríus suðusúkkulaði gerir einfaldlega allt betra!

martini espresso ostakaka
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun