Blómkálssúpa



⌑ Samstarf ⌑
Blómkálssúpa með rjóma

Haustið kallar á súpugerð og ég skil hreinlega ekki af hverju ég elda ekki oftar ljúffengar súpur! Það er eitthvað svo notalegt við svona máltíð og mikilvægt að hafa gott brauð með, ekki myndi skemma fyrir að baka eitt slíkt og bera fram volgt með nóg af smjöri!

Blómkálssúpa með bökuðu blómkáli

Blómkálssúpa

Fyrir 4-5 manns

  • 1 x blómkálshaus (meðalstór)
  • 1 gulrót
  • ½ laukur
  • ½ blaðlaukur
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 l vatn
  • 500 ml rjómi
  • 2 x grænmetisteningur
  • Smjör
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  • Brauðteningar
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið blómkálið niður í munnstóra bita og raðið þeim í ofnskúffu. Setjið vel af ólífuolíu yfir og kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti eftir smekk og bakið í ofninum í 20 mínútur á meðan þið undirbúið annað.
  3. Saxið lauk, blaðlauk og gulrót niður og steikið við meðalhita upp úr vel af smjöri, kryddið eftir smekk. Þegar blandan fer að mýkjast má rífa hvítlaukinn yfir og steikja stutta stund áfram. Hellið því næst vatninu yfir og setjið teningana saman við, náið upp suðunni og lækkið hitann síðan alveg niður og leyfið þessu að malla í um 15 mínútur.
  4. Bætið ¾ af blómkálsbitunum í pottinn þegar þeir eru búnir að vera í ofninum í 20 mínútur, geymið restina til að skreyta með.
  5. Maukið síðan allt grænmetið í pottinum með töfrasprota, náið upp hitanum að nýju, bætið rjómanum saman við og smakkið til með kryddum.
  6. Berið fram í skálum með ofnbökuðu blómkáli og brauðteningum á toppnum.
rjómalegin súpa

Rjómi gerir lífið síðan einfaldlega miklu betra og ljúffengara!

góð súpa uppskrift
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun